Fæddur: Reykjavík, 30. mars 1957
Menntun: Stúdent frá Menntaskólanum í Kópavogi 1976 og cand. juris frá Háskóla Íslands með I. einkunn þann 26. júní 1982.
Málflutningsréttindi: Fyrir héraðsdómi 1991 og Hæstarétti 1999.
Félagsstörf: Hefur setið í stjórnum fjármálafyrirtækja, félaga og stofnana, ýmsum nefndum og ráðum.
Ritstörf o.fl.: „Um útvarpsgjald“ ‚ Úlfljótur –Rökstólar 2. tbl. 1999, birtist einnig síðar í ársskýrslu Ríkisútvarpsins fyrir 1998. Höfundur, ýmist einn, eða ásamt fleirum að lagafrumvörpum og reglugerðum á sviði flugrekstrar. Stundakennari um 8 ára skeið í almennri lögfræði við lagadeild Háskóla Íslands.
Helstu sérsvið: Fjármunaréttur, þ.m.t. löggjöf um vinnumarkað, banka og sparisjóði, flugrekstur, útvarpsrekstur og vernd réttinda sem tengd eru höfundarétti.