Skiptastjórnun
Lögmenn Landslaga hafa áratuga reynslu af skiptastjórn í þrotabúum einstaklinga og fyrirtækja, sem og hvers konar fullnustugerðum, skuldauppgjörum og fjárhagslegri endurskipulagningu. Á undanförnum árum hafa lögmenn stofunnar verið skipaðir skiptastjórar í þrotabúum umsvifamikilla fyrirtækja og einstaklinga, og sem umsjónarmenn nauðasamninga nokkurra af stærstu fyrirtækjum landsins.