Fallist á sýknukröfu HHÍ

birt 22. nóvember 2016

Á föstudaginn var gekk dómur héraðsdóms Reykjavíkur í máli sem eigandi happdrættismiða höfðaði gegn Happdrætti Háskóla Íslands (HHÍ). Stefnandi málsins keypti í ág­úst 2011 tromp­miða á vef HHÍ og gaf þar meðal annars upp upp­lýs­ing­ar um greiðslu­korta­núm­er. Í skil­mál­um HHÍ kom fram að miðinn yrði „gild­ur frá og með næsta út­drætti og öll­um út­drátt­um þaðan í frá á meðan greiðslu­samn­ingn­um er ekki sagt upp af þinni hálfu og greiðsla berst til HHÍ fyr­ir viðkom­andi úr­drátt“. Samið var um að greiðslu­kort stefn­anda yrði skuld­fært mánaðarlega og fór skuld­færsl­an fram á tíma­bil­inu 11. til 18. hvers mánaðar. HHÍ gerði 17. sept­em­ber 2013 til­raun til þess að skuld­færa greiðslu­kort manns­ins fyr­ir út­drátt­inn í októ­ber 2013. Ekki tókst að skuld­færa greiðslu­kortið þar sem notk­un korts­ins var kom­in um­fram lána­mörk þann mánuðinn. Miðinn var því ekki endurnýjaður fyrir útdráttinn en í honum kom vinningur á miðanúmer mannsins. Samkvæmt þeim reglum sem gilda um þennan útdrátt, svonefndan „milljónaútdrátt“, þá fluttist fjárhæðin yfir í útdrátt í nóvember og bættist við milljónaútdráttinn þann mánuðinn. Í þeim útdrætti var dreginn út endurnýjaðaður miði og fékk sá miðaeigandi því vinninginn, auk vinnings nóvembermánaðar. Sá sem missti af vinningnum taldi að happadrættismiði sinn hefði verið gildur, þrátt fyrir að hann hefði ekki greitt fyrir endurnýjun hans fyrir útdráttinn og þar með brotið gegn skilmálum þeim er giltu er hann keypti miðann. Hann höfðaði mál á hendur HHÍ og krafðist greiðslu vinningsins. Í niðurstöðum dómsins kemur meðal annars fram að það hafi verið á ábyrgð viðskiptavinar að tryggja að unnt væri að skuldfæra greiðslukort hans fyrir endurnýjuninni, en hann hafi sjálfur getað fylgst með hvort endurnýjunin hefði verið skuldfærð áður en komið var að útdrætti. Var HHÍ sýknað af öllum kröfum miðaeigandans.

Hörður Helgi Helgason lögmaður hjá Landslögum gætti hagsmuna HHÍ í málinu. Um málið hefur verið fjallað á helstu vefmiðlum svo sem fréttavef mbl.is.

Landslög veita alhliða lögfræðiráðgjöf og annast málflutning á flestum sviðum lögfræðinngar. Nánari upplýsingar um þjónustu Landslaga veitir Hildur Ýr Viðarsdóttir hdl. (hildur@landslog.is).