Landslög - lögfræðistofa
- stendur á gömlum merg

Landslög - lögfræðistofa hóf starfsemi þann 30. apríl 1999. Að henni standa 7 lögmenn: Garðar Garðarsson hrl.,  Vilhjálmur H. Vilhjálmsson hrl., Jóhannes Karl Sveinsson hrl. og Viðar Lúðvíksson hrl., Grímur Sigurðsson, hrl., Ívar Pálsson, hdl. og Jóna Björk Helgadóttir, hdl.  Á stofndegi yfirtóku Landslög rekstur tveggja rótgróinna lögmannsstofa, þ.e. Lögmannsstofu Jóns Sveinssonar í Reykjavík og Lögmanna Garðars og Vilhjálms í Keflavík.

Upphaf reksturs skrifstofu Garðars og Vilhjálms má rekja til ársins 1971 er Garðar Garðarsson setti á stofn lögfræðistofu í Keflavík. Hann rak stofuna einn til ársins 1980 en þá gekk Vilhjálmur H. Vilhjálmsson inn í reksturinn. Jón Sveinsson rak eigin lögfræðiskrifstofu á Akranesi frá árinu 1980 til ársins 1988 og jafnframt samhliða í Reykjavík frá 1987 til 1988 en síðan eingöngu í Reykjavík frá árinu 1991. Jón hefur nú horfið til annarra starfa. 

Landslög - lögfræðistofa hefur aðsetur í Reykjavík og í Reykjanesbæ. 12 lögmenn starfa hjá stofunni, þar af fimm með réttindi til málflutnings fyrir Hæstarétti.

Verkefni Landslaga eru fjölbreytt enda eru viðskiptavinir stofunnar allt frá einstaklingum til stórfyrirtækja, fjármálastofnana, sveitarfélaga og stofnana ríkisins. Stofan veitir sérhæfða þjónustu á mörgum sviðum, svo sem við samninga- og skjalagerð, álitsgerðir, hlutafélagarétt, leigusamninga, samkeppnisrétt, sjó- og flutningarétt, skipasölu, stjórnsýslurétt, sveitarstjórnarrétt, vátryggingarétt, verksamninga og innheimtur svo eitthvað sé nefnt. Þá veitir stofan alla almenna ráðgjöf, hefur með höndum skipti dánar- og þrotabúa, málflutning, uppgjör slysa- og skaðabótamála o.s.frv.