Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, hrl.  /   Eigandi
Fædd/ur:Seltjarnarnesi þann 24. júní 1950.
Menntun:Stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík og cand. juris frá Háskóla Íslands með I. einkunn þann 26. júní 1976. Framhaldsnám við Nordisk Institutt for Sjörett við Oslóarháskóla 1977-1978 og aftur haustið 1997.
Málflutnings- réttindi:Fyrir héraðsdómi árið 1979 og Hæstarétti árið 1987.
Félagsstörf:Í stjórn L.M.F.Í. 1985-1987. Í yfirkjörstjórn Reykjavíkur frá 1987. Dómari í Félagsdómi 1996-2003. Í úrskurðarnefnd í vátryggingamálum frá 1997.
Ritstörf o.fl.:Rederansvar for yrkesskader, Marius nr. 57, Oslo 1980. Skaðabótalög, Tímarit lögfræðinga 3. hefti 1998. Stundakennsla í réttarfari við lagadeild Háskóla Íslands 1992-1996. Borgarlögmaður 2003-2004.
Helstu sérsvið:Skaðabótaréttur. Vátryggingaréttur. Sjóréttur. Vinnuréttur. Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, hrl., er einn reyndasti og virtasti lögmaður landsins. Hann hefur yfir 30 ára reynslu af rekstri slysa– og skaðabótamála og hefur auk þess rekið fjölda slíkra mála fyrir dómstólum.