Grein Vilhjálms H. Vilhjálmssonar í tilefni dóms Hæstaréttar í svokölluðu ,,kvótamáli" Valdimars Jóhannessonar gegn íslenska ríkinu. Birtist í Morgunblaðinu.
Dómur aldarinnar?

Hæstiréttur Íslands hefur kveðið upp dóm í málinu nr. 145/1998, Valdimar Jóhannesson gegn íslenska ríkinu.

Þessi dómur er það merkilegur að hæfilegt má telja að velja honum fjölmiðlafyrirsögn af því tagi sem hér er gert.

Mannréttindaákvæði stjórnarskrárinnar eru ekki þess eðlis að auðvelt sé að festa hendur á þeim á þann hátt að ákveðnar athafnir stjórnvalda, eða tiltekin lög megi á einfaldan hátt greina sem brot á þessum ákvæðum.

Ákvæði þessi eru frekast eins konar markmið, yfirlýsing.

Ákaflega vandasamt er að túlka slík ákvæði. Hvar byrjar og endar meginreglan sem reynt er að orða í stjórnarskrárákvæðinu og hvernig eru orð hennar skýrð. Hvar fer stjórnvaldið eða almenni löggjafinn of langt þannig að ákvarðanir þeirra brjóti meginreglu stjórnarskrárinnar.

Þegar ég las dóm Hæstaréttar í fyrrnefndu máli nr. 145/1998 varð ég fyrst undrandi en síðan stoltur.

Stoltur yfir þeim kjarki Hæstiréttar að kveða upp dóm sem þennan. Dóm sem túlkar ákvæði stjórnarskrárinnar afdráttarlaust. Dóm sem óneitanlega kemur sér illa fyrir þá er ráða þessu landi í stjórnmálum og efnahagsmálum.

Stoltur vegna þess að Hæstiréttur gat hafið sig upp yfir moldviðrið, dægurþrasið og hagsmunina sem fylgja umræðunni um kvótakerfið og dæmt um það hvort hin umdeilda ákvörðun sjávarútvegsráðuneytisins væri lögfræðilega rétt og í samræmi við stjórnarskrá. Það er ákvörðunin ekki, segir Hæstiréttur. Hún er ógild.

Um dóminn sjálfan þarf ekki að hafa mörg orð. Hann er mjög skýr. Það samrýmist ekki ákvæðum stjórnarskrár að mismuna mönnum sem sækja um veiðileyfi eftir því hvort þeir hafa áður átt skip á tilteknu árabili eða ekki.

Á sama hátt má draga þá ályktun af dóminum að það samræmist heldur ekki stjórnarskránni að mismuna mönnum sem sækja um aflahlutdeild ( kvóta ) eftir því hvort þeir hafa áður notið slíkra réttinda eða ekki. Skilyrðin fyrir úthlutun þessara réttinda verða að vera þannig að landsmenn standi þar jafnt að vígi.

Nú munu varðhundar kvótakerfisins safna liði og reyna að drepa þessum dómi Hæstaréttar á dreif. Fá Alþingi til að breyta lögum nr. 38/1990 í það horf sem sérfræðingar útvegsmanna og ríkisvalds leggja til. Til hvers? Til að áfram megi úthluta veiðileyfum og aflahlutdeild til fárra útvalinna?