Landslög styrkja laganema í norrænu málflutningskeppninni

birt 3. ágúst 2016

Norræna málflutningskeppnin fór fram í Helsinki 9.-12. júní síðastliðinn. Laganemar úr Háskóla Íslands sem mynda liðið Club Lögberg tóku þátt í keppninni þar sem keppendur spreyta sig á sviði málflutnings um raunhæf álitaefni af vettvangi Mannréttindasáttmála Evrópu. Keppnin fer fram á dönsku, sænsku og norsku. Dómarar Norðurlandanna við Mannréttindadómstól Evrópu ásamt norrænum hæstaréttardómurum dæma í keppninni.

Landslög styrktu Club Lögberg til þátttöku í keppninni. Liðið skipuðu Áslaug Björk Ingólfsdóttir, Iðunn Garðarsdóttir, Jenný Harðardóttir, Linda Ramdani, Sigurður Helgason og Sindri Rafn Þrastarson. Garðar Garðarsson, hæstaréttarlögmaður einn stofnenda Landslaga var meðal upphafsmanna að því að íslenskir laganemar hófu að taka þátt í keppninni á sínum tíma. Síðan þá hefur málflutningskeppnin þróast og orðið meiri að sniðum. „Það er mikilvægt að íslenskir lögfræðingar og laganemar eigi í ríkum samskiptum við norræna kollega sína og það er ánægjulegt að sjá hvernig keppnin hefur þróast.“ segir Garðar.The Nordic Moot Court Competition on the European Convention of Human Rights took place in Helsinki 9-12 June. Law students at the Unitversity of Iceland‘s Law Faculty participated among competitors forming team Club Lögberg. The teams competed in hearings on real issues related to the principles of the European Charter of Human Rights.  Landslög wasamong Club Lögberg‘s sponsors.

Gardar Gardarsson, Supreme Court Attorney and one of Landslög‘s founders took part in introducing the competition to Icelandic law students when they first started to take part. „It‘s important that Icelandic lawyers and law students enjoy a rich relationship with their Nordic colleagues and it nice to see how this competition has developed.“ says Gardar.