Lið Landslaga keppir í WOW Cyclothon

birt 17. júní 2013

Nokkrir starfsmenn Landslaga og vinir ætla að taka þátt í WOW CYCLOTHON dagana 19. – 22. júní, en WOW CYCLOTHON er alþjóðleg hjólreiðakeppni þar sem hjólað er hringinn í kringum Ísland.

Lið Landslaga tekur þátt í B-flokki í keppninni og munu 10 liðsmenn skiptast á að hjóla 1.332 km á innan við 72 klukkustundum.

Eitt af aðalmarkmiðum keppninnar er að safna fé fyrir Barnaheill – Save the Children á Íslandi og leggur lið Landslaga mikið uppúr því að standa sig sem best í þessum þætti keppninnar.

Hægt er að styrkja liðið með upphæð að eigin vali, annað hvort með því að senda sms eða greiða með greiðslukorti á vefnum.
Hér er hægt að fá nánari upplýsingar um lið Landslaga og hvernig er hægt að styrkja Barnaheill hér
.
Á meðan á keppninni stendur verður hægt að fylgjast með gengi liðanna hér.