Landsréttur staðfestir sýknudóm í máli vátryggingafélaga

birt 28. maí 2021

Þann 28. maí 2021 kvað Landsréttur upp dóm í máli sem LBI ehf. höfðaði á hendur fyrrverandi stjórnendum Landsbanka Íslands hf. og enskum vátryggingafélögum (QBE International Insurance Ltd. o.fl.), sem selt höfðu Landsbanka Íslands hf. svokallaða stjórnendatryggingu (Directors‘ & Officers‘ Liability Insurance) á árinu 2008. Viðar Lúðvíksson og Hildur Ýr Viðarsdóttir, lögmenn hjá Landslögum, gættu hagsmuna vátryggingafélaganna í dómsmálinu, sem er hluti af umfangsmestu einkamálum sem rekin hafa verið fyrir íslenskum dómstólum, en meðferð málanna fyrir dómstólum hófst árið 2012. Upphaflega höfðaði LBI ehf. þrjú dómsmál og hafði uppi kröfur um greiðslu skaðabóta og vátryggingarbóta samtals að fjárhæð um 50 milljarða króna auk vaxta og kostnaðar. Héraðsdómur Reykjavíkur hafði áður vísað tveimur málanna frá dómi án kröfu en sýknaði vátryggingafélögin og aðra stefndu í því þriðja. Landsréttur hefur með dómi sínum í dag staðfest niðurstöðu héraðsdóms um sýknu vátryggingafélaganna.