Samskiptavandi getur verið fasteignagalli

birt 5. mars 2021

Samkvæmt nýlegum dómi Landsréttar taldist fasteign haldin galla þar sem seljendur greindu ekki frá samskiptavanda í fjöleignarhúsinu. Af dóminum og skrifum fræðimanna má ráða að upplýsingar um erfiða nágranna og alvarlegan samskiptavanda eru upplýsingar sem seljanda ber að veita kaupanda við sölu fasteignar.Hildur Ýr Viðarsdóttir hrl. og lögmaður á Landslögum skrifaði grein um málið í Viðskiptablaðið. Hana má nálgast hér.