Fasteignamál í brennidepli á ráðstefnu MFÍ
birt 25. september 2026
Í síðustu viku fór fram ráðstefna á vegum Matsmannafélags Íslands um upplýsingagjöf og ástandsmat vegna sölu fasteigna. Markmið ráðstefnunnar var að efna til umræðu um fasteignagallamál hér á landi og endurvekja umfjöllun um hvort gera eigi ástandsskoðanir fasteigna að skyldu við sölu þeirra í því skyni að fækka ágreiningsmálum vegna galla.
Á ráðstefnunni héldu erindi ýmsir sérfræðingar og hagsmunaaðilar úr ólíkum áttum og með fjölbreytt sjónarhorn á viðfangsefnið. Sara Bryndís, lögmaður hjá Landslögum, fjallaði um ágreiningsmál í fasteignakaupum og nýlega dómaframkvæmd.
Lögmenn Landslaga aðstoða fjölmarga kaupendur og seljendur á hverju ári með hvers konar ágreiningsmál vegna fasteignakaupa.