Hjóluðu hraðar!

birt 1. júlí 2014

Lið Landslaga hafnaði í 19. sæti af 38 í sínum flokki í hjólreiðakeppninni WOW Cyclothon. Liðið bætti tima sinn frá því í fyrra og hjólaði í kringum landið á  44 tímum og 41 mínútu en í fyrra hjólaði liðið sömu leið á 45 tímum og 51 mínútu. Þá safnaði liðið í ár 222.000 kr. í áheitum í tengslum við keppnina. Hópurinn var ánægður með árangurinn að aflokinni keppni og sérstaklega þakklátur Herz bílaleigunni sem lagði liðinu til forláta lúxusjeppa sem ferjaði þann hluta liðsins sem ekki var að hjóla hverju sinni. Þá vill liðið koma á framfæri þökkum til þeirra sem hétu á það og öllum þeim sem veittu liðinu hvatningu.