Mál málsóknarfélags á hendur Björgólfi Thor þingfest

birt 30. október 2015

Í gær var stefna í máli Málsóknarfélags hluthafa í Landsbanka Íslands á hendur Björgólfi Thor Björgólfssyni þingfest. Mætt var af hálfu Björgólfs og óskað eftir 3 vikna fresti til að skila greinargerð um frávísun málsins frá dómi, þ.e. án efnismeðferðar. Félagar í málsóknarfélaginu eru nú orðnir vel á þriðja hundrað og félagsgjöld komin fram úr markmiðum sem félagið setti sér við stofnun þess.

Enn er hægt að skrá sig í félagið en með tímanum aukast líkur á fyrningu krafna þeirra sem ekki hafa skráð sig í félagið.

Frekari upplýsingar um hópmálsóknina er að finna á vefsíðu málsóknarfélagsins malsokn.landslog.is eða í síma 5202917.